Forsíða > Háaleitisskóli > Frístund

Frístundaskóli Háleitisskóla

Umsjónarmaður: Margit Lína Hafsteisndóttir.
Sími: 420 3050 / 8630770

Frístundaskólinn er fyrir nemendur í 1.- 4. bekk og starfar frá kl. 13:20-16:00 á starfstíma skóla. Boðið er upp á síðdegishressingu alla daga. Frístundaskólinn starfar ekki í jóla- og páskafríum nemenda né á starfsdögum skóla og vetrarfríi.

Starfsmaður auk umsjónarmanns er Guðrún Geirsdóttir.

Fylla þarf út umsóknareyðublað fyrir dvöl í frístundaskólanum þar sem fram koma upplýsingar um íþrótta- eða tómstundastarf sem nemendur taka þátt í á starfstíma frístundaskólans.

Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá umsjónarmanni Frístundar. Sótt er um fyrir hvert skólaár í senn. Ef vistunartíma er breytt skal gera það fyrir 15. hvers mánaðar. Segja verður upp vist í frístundaskólanum með tveggja vikna fyrirvara. Nauðsynlegt er að tilkynna veikindi og leyfi til umsjónarmanns eða skólritara fyrir kl. 13 þá daga sem nemendur koma ekki í frístundaskólann.

Kostnaður og innheimta
Gjaldkeri bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar sér um innheimtu gjalda fyrir frístundaskólann. Kostnaður foreldra er 14.400 krónur á mánuði miðað við fullt gjald með síðdegishressingu.  Óski foreldri eftir að greiða tímagjald þá er það 315 kr. á tímann og síðdegishressing kostar 105 kr.
Veittur er 25% systkinaafsláttur vegna þriðja barns og 50% vegna fjórða barns úr sömu fjölskyldu.