Forsíða
> Um skólann
> Þróunarstarf
> Olweus
Olweus
Olweusarkerfið er eineltisáætlunarkerfi Dans Olweusar og er hann talinn einn fremsti sérfræðingur í eineltismálum á Norðurlöndum. Njarðvíkurskóli hóf að vinna með kerfi Olweusar haustið 2003 og náði verkefnið yfir tvö skólaár. Allir starfsmenn skólans tóku þátt í verkefninu. Markmið með verkefninu var og er að gera starfsmenn skólans hæfari í að greina og taka á einelti í skólanum og gera nemendur meðvitaðri um einelti og afleiðingar þess. Í skólanum er m.a lögð áhersla á bekkjarfundi þar sem umsjónakennarar og nemendur ræða nám og líðan á líðandi stundu. Eineltisteymi skólans vinnur að þeim málum sem upp koma og tengjast einelti og styðja þannig kennara í þeirri vinnu.







