Forsíða > Um skólann > Þróunarstarf > Samkennsla

Samkennsla í 3. og 4. bekk

Skólaárið 2005-2006 er ákveðið að vera með þróunarverkefni þar sem 3. og 4. bekk verður kennt saman í samkennslu. Þrír umsjónarkennarar koma að hópnum en þeir munu hafa samskipti við foreldra um nám, líðan og hegðun nemenda í sínum hóp auk þess að halda utan um námsframvindu nemenda sinna, heimanám og áætlanagerð.

Nemendur vinna hver að sínum verkefnum í íslensku og stærðfræði eftir áætlunum sem þeir vinna í samráði við umsjónarkennara í byrjun vikunnar. Kristinfræði, samfélagsfræði, lífsleikni og náttúrufræði eru skipulögð af umsjónarkennurum í þemum þar sem nemendur vinna saman í misstórum hópum allt eftir umfangi verkefnis. List – og verkgreinar eru í hringekju þar sem hópnum er skipt í fimm hópa og hver hópur fer í 10 vikur í hverja grein tvo tíma í senn. List- og verkgreinakennsla verður tvisvar sinnum í viku tvo tíma í senn.

Gerð hefur verið þróunaráætlun sem unnið verður eftir. Leiðsagnarmat verður gert á meðan á verkefninu stendur og eftir fyrsta skólaárið verður tekið ákvörðun um framhaldið en hugmyndin er að sækja um þróunarstyrk eftir fyrsta árið á grundvelli þeirrar reynslu sem við fáum af því.

Þróunarverkefnið á að stuðla að fjölbreyttum kennsluháttum með áherslu á einstaklingsmiðað nám.