Forsíða
> Bekkjafréttir
Til baka
Kiwanis gefur nemendum hjálma
Nemendur í 1. bekk fengu góða heimsókn á vordögum þegar fulltrúar frá Kiwanis komu færandi hendi og gáfu öllum nemendum 1. bekkjar hjálma. Krissi lögga kom með þeim og fór yfir hvernig á að festa hjálminn og hvar og hvenær á að nota hjálma. Við þökkum Kiwanis fyrir þessa frábæru gjöf og hvetjum alla nemendur til að vera duglega að nota hjálmana sína.
| Nemendur fá afhenda hjálma |
Til baka







