Forsíða > Bekkjafréttir

Krufning á brjóstholslíffærum úr svínum

Nemendur 7. bekkjar hafa í vetur verið í námsefninu Líkami mannsins í náttúrufræði.  Í dag fengu þau svo að spreyta sig á verklegum æfingum þegar þau krufu brjóstholslíffæri úr svínum.  Krufningin gekk mjög vel og þótt sumum hafi klígjað við þessu í fyrstu þá fór það fljótt úr þeim og þau tóku virkan þátt í þessu verkefni.  Fyrst var farið yfir hvað hvert líffæri heitir og hvernig það starfar.  Nemendur voru mjög duglegir að muna og greinilegt að þau hafa tekið vel eftir í tímum í vetur.  Myndir frá krufningunni í dag má sjá í myndasafni 7. bekkjar á bekkjarsíðunum hér til hliðar.

áhugasamir nemendur


Til baka