Forsíða > Bekkjafréttir

Vorferð 4.-5. bekkur

Fimmtudaginn 3. júní fóru nemendur úr 4.-5. bekk í Vorferð. Að þessu sinni var farið út í Garð. Fyrst skoðuðu nemendur skrúðgarð þeirra Garðmanna en Unnur Gísladóttir og Magnús Magnússon gáfu sveitarfélaginu garð sinn, sem þau höfðu hugsað um og ræktað frá því að þau byrjuðu að búa, en Magnús er látinn og Unnur er rúmlega áttatíu ára gömul. Nemendur drukku nestið sitt í garðinum og hugsuðu þeir vel um að henda ekki rusli, gengu mjög vel um. Síðan gengu nemendur út að Útskálakirkju. Þar fengu þeir að fara inn og Kristbjörg sagði þeim frá sögu kirkjunnar. Hún var byggð á árunum 1861-1863. Predikunarstóllinn er frá 1865 og er frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Nemendur voru mjög prúðir, báru virðingu og voru virkilega áhugasamir. Þá var haldið niður í fjöru. Nemendur stigu upp á sjóvarnargarðinn, öskruðu upp í vindinn (það er mjög sjaldan vindur í Garðinum ha ha) fylltu lungun af sjávarlofti, allir voru sælir og glaðir. Sumir veiddu krabba og aðrir léku sér í fjörunni. Þá gengu nemendur heim til Kristbjargar og þar borðuðu þeir hádegisnestið, allir virtu reglur og voru kurteisir. Að endingu var svo farið í sund í Íþróttamiðstöðina. Þar voru nemendur til fyrirmyndar. Starfsfólkið talaði sérstaklega um það hve nemendur voru kurteisir og frábærir. Áður en haldið var af stað heim fengu nemendur ís á meðan þeir léku í nýju tækjunum fyrir utan Gerðaskóla.
 
Frábær dagur og frábærir nemendur.
Við erum stoltar
Katrín, Kristbjörg, Kristín Björk og Laufey
Í Útskálakirkju

Til baka