Forsíða > Fréttir

10. bekkur á Alþingi o.fl

Þann 16. október sl. fóru nemendur í 10. bekk, ásamt umsjónarkennurum, í menningarferð til Reykjavíkur. Þetta er í þriðja sinn sem farið er með 10. bekkinga í slíka ferð sem ætíð hefur þótt heppnast einstaklega vel. Í þetta sinn fóru þeir og skoðuðu Landnámssetrið og fengu frábæra leiðsögn í gegnum safnið sem er er hið glæsilegasta í alla staði. Sérstaklega höfðu krakkarnir gaman af að skoða fornleifarnar og að sjá myndir af Reykjavíkursvæðinu eins og það var við landnám.

Hópurinn kom einnig við á Listasafni Íslands og skoðaði verk sem eru í eigu þýska iðjuhöldsins Reinholds Wurth og fékk að heyra sögurnar á bak við helstu verkin. Safnið hans er eitt stærsta einkasafn í Evrópu sem hefur að geyma nútíma- og samtímaverk. Í hádeginu fór hópurinn á Grillið á Hótel sögu og hitti þar rithöfundinn Einar Má Guðmundsson. Hann fór með nokkur ljóð og las úr nýjustu bókinni sinni. Nemendur fengu síðan tækifæri til að spyrja hann út í söguna Engla alheimsins, sem þeir höfðu nýlokið við að lesa. 

Að lokum var farið á Skólaþing en þar fóru nemendur í hlutverkaleik og fylgdu í stórum dráttum reglum um starfshætti Alþingis. Þeir fengu tækifæri til að setja sig í spor þingmanna með því að leiða fyrirfram ákveðin málefni, sem fyrir þá voru lögð, til lykta á þingflokksfundum, nefndarfundum og þingfundum. Jafnframt hlustuðu þeir á og mátu rök sérfræðinga sem kallaðir voru til til að veita þingmönnum ráðgjöf. Krakkarnir fengu þannig innsýn í sambandið milli atburða í samfélaginu, skoðanamyndunar, pólitískra ákvarðana og starfa Alþingis. Einnig áhrif almennings, sérfræðinga, fjölmiðla og hagsmunaaðila á löggjafarstarfið. Nemendur áttu að komast að lýðræðislegri niðurstöðu með því að hlusta á og meta rök og álit annarra, tjá eigin skoðun og taka afstöðu. Þetta var mjög skemmtilegt og tók heldur lengri tíma en venjulega þar sem okkar fólk hafði svo mikið að segja varðandi málefnin áður en til atkvæðagreiðslu kom. Hafði starfsmaður Skólaþings orð á því að þetta hefði verði besti hópur sem til þeirra hefur komið, þannig að án efa leynast einhverjir framtíðarþingmenn í hópnum.

Hópurinn hélt svo glaður heim á leið eftir vel heppnaða ferð í höfuðborgina. Frábærir krakkar sem voru kennurunum og skólanum til sóma.


Til baka