Forsíða > Fréttir

Brúum bilið

Brúum bilið kallast skipulegt samstarf leik- og grunnskóla. Markmið samstarfsins er m.a. að tengja skólastigin saman, að skapa samfellu í námi og kennslu barna/nemenda, að stuðla að vellíðan og öryggi barna þegar þau fara milli skólastiga.

19. október fór1. bekkur í heimsókn í Heilsuleikskólann Háaleiti að hitta elstu börnin. Krakkarnir lituðu, púsluðu og spiluðu við leikskólakrakkana, síðan settumst við í hring og héldum upp á afmæli, borðuðum ávexti og sungum saman. Eftir inniveruna fórum við öll saman á útisvæðið og héldum áfram að leika okkur.

26. október var ferðinni heitið á leikskólann Völl þar sem við hittum elstu börnin. Byrjað var á því að fara í leiki í innigarðinum. Etir nokkra leiki var boðið upp á hressingu og þegar allir höfðu fengið sér ávaxtabita var frjáls leikur í innigarðinum sem vakti mikla lukku.

Við þökkum Heilsuleikskólanum Háaleiti og leikskólanum Velli kærlegan fyrir okkur.


Til baka