Forsíða > Fréttir

Dagur gegn einelti

Þriðjudaginn 27. september munu allir nemendur Njarðvíkurskóla og Háaleitisskóla vinna að verkefnum gegn einelti með sínum umsjónarkennara.  Nemendur verða hjá umsjónarkennara frá kl. 8:15-12:00 og falla því sérgreinatímar niður fyrir hádegi.  Þennan dag fá allir fræðslu og þjálfun í forvarnarkerfi gegn einelti sem heitir Stöndum saman þar sem sama hugmyndafræði er notuð og í stuðningi við jákvæða hegðun (PBS).  Meginhugmynd þessa forvarnarkerfis er að kenna nemendum að bregðast við óæskilegu áreiti, hvernig þeir bregðast við bæði sem þolendur og gerendur.  Einnig að styrkja þau að segja frá og að það er ekki það sama að segja frá og klaga.  Við hvetjum foreldra til að ræða um einelti við sín börn heima og láta umsjónarkennara strax vita sé grunur um einelti.


Til baka