Forsíða
> Fréttir
Til baka
Foreldradagur í skólanum
Foreldradagur er þriðjudaginn 17. janúar. Nemendur mæta með foreldrum sínum til viðtals við umsjónarkennara en auk þess eru fag- og sérgreinakennarar til viðtals í sínum stofum.
Foreldrafundur er tækifæri fyrir kennara til að hitta foreldra ásamt því að ræða um niðurstöður námsmats og líðan nemenda. Þetta eru því mikilvægir fundir sem foreldrar þurfa að nýta vel.
Við minnum foreldra að fara yfir óskilamuni á sal skólans og í íþróttahúsinu.
Til baka







