Forsíða > Fréttir

Foreldrakynning 1. september 2010

Foreldrakynning verður á sal Njarðvíkurskóla 1. september 2010 kl. 19:30.  Ingigerður Sæmundsdóttir, verkefnastjóri FFGÍR, flytur stutt erindið "Haltu í höndina á mér" og á eftir fara foreldrar í heimastofur þar sem kennarar fara yfir námsáætlanir, námsefni, námsmat og annað mikilvægt er varðar skólastarfið framundan.  Foreldrar eru eindregið hvattir til að koma á kynninguna.

Foreldrakynning fyrir Háaleitisskóla verður á sal skólans kl. 18:00, 1. september 2010 og verður dagskrá með svipuðu sniði og í Njarðvíkurskóla.


Til baka