Forsíða
> Fréttir
Til baka
Fornminjar í Höfnum skoðaðar
Nemendur í 4. og 5. bekk fóru að skoða fornminjagröft í Höfnum í gær. Það var menningarsvið Reykjanesbæjar sem bauð þeim upp á þessa ferð. Nemendur fengu eftirfarandi umsagnir frá skipuleggjanda ferðarinnar: "Gaman að segja frá því að hópurinn var til mikillar fyrirmyndar. Frábært að taka á móti krökkum sem vel er haldið utan um og augljóst er að metnaður er lagður í að hópurinn komi vel fram og hafi möguleika á að fá eitthvað út úr heimsókninni. Flottir krakkar og súper kennarar" Guðlaug Lewis.
Myndir frá ferðinni má sjá í myndasafni 4.-5. bekkjar.
Til baka







