Forsíða > Fréttir

Fundur um skólabrag, agamál og einelti

Kynning á nýrri reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum

Þriðjudaginn 17. janúar nk. munu Suðurnesjavaktin, FFGÍR (Foreldrafélög 
grunnskólanna í Reykjanesbæ) og fræðsluskrifstofur á Suðurnesjum standa 
fyrir kynningu á nýrri reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila 
skólasamfélagsins í grunnskólum. Guðni Olgeirsson sérfræðingur í 
menntamálaráðaneytinu mun kynna og svara spurningum um reglugerðina en 
hún tekur til fjölmargra atriða er varða grunnskólastarfið.
Lögð er sérstök áhersla á skólabrag, agamál, eineltismál, ábyrgð og 
skyldur aðila skólasamfélagsins í þeim efnum og málsmeðferð í skólum 
þegar misbrestur verður á tilteknum atriðum.

Reglugerðin er afar mikilvægur áfangi en síðustu misseri hefur verið 
unnið að gerð heildstæðrar reglugerðar í samráði við hagsmunaaðila og er 
í anda þeirrar stefnumótunar sem hefur farið fram um velferð nemenda.

Kynningin verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja klukkan 17:30-18:30
Vonumst til að sjá sem flesta,
FFGÍR



Til baka