Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar
Vikuna 3. - 9. október er heilsu- og forvarnarvika hjá Reykjanesbæ. Háaleitisskóli tók þátt í þessu verkefni með ýmsum hætti þessa vikuna.
Göngum í skólann:
![]() |
| Duglegir nemendur að ganga/hjóla í skólann. |
Megin markmið verkefnisns "Göngum í skólann" eru að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir vistvænan ferðamáta og umhverfismálum og það hversu "gönguvænt" umhverfið er. Tók Háaleitisskóli þátt í þessu verkefni nú annað árið í röð. Var þessi vika (3. - 7. október) tileinkuð þessu verkefni. Umsjónakennarar unnu ýmis verkefni með nemendum þessa vikuna sem tengjast átakinu "Göngum í skólann". Eins voru nemendur hvattir til að nýta sér virkan ferðamáta í og úr skólanum, t.d. að ganga eða hjóla. Miðvikudaginn 5. október var síðan alþjóðlegi "Göngum í skólann" dagurinn og var efnt til hópgöngu í skólann. Fóru kennara fyrir hóp u.þ.b. 30 nemenda sem gengu og hjóluðu saman í skólann. Höfðu nemendur á orði að þetta hafi verið mjög frískandi og skemmtileg byrjun á deginum.
Mataræði:
| Nemendur voru duglegir að taka inn Lýsi. |
Nemendur skólans voru hvattir til þess að koma með heilsunesti í skólann þessa vikuna, t.a.m. grænmeti og ávexti. Unnu svo nemendur verkefni í tengslum við þennan þátt, gerðu lista yfir hvernig ávexti eða grænmeti nemendur komu með, bjuggu til súlurit o.s.frv. Þá bauð Skólamatur nemendum upp á Lýsi og voru nemendur almennt mjög duglegir að fá sér.
Tannvernd:
Skólahjúkrunarfræðingur Háaleitisskóla, Jóna Björg, var með fræðslu í öllum bekkjum um tannvernd,fékk 1. bekkur einnig flúorskol.
Lögregluheimsókn:
Kristján Freyr Geirsson (Krissi lögga) kom í skólann og var með erindi í öllum bekkjum, m.a. um hjálmanotkun, útivistareglur og bílbeltanotkun.
Norræna skólahlaupið:
Heilsu- og forvarnarviku lauk svo með norræna skólahlaupinu. Hlaupið er haldið í skólum víða um land og allir hljóta viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Allir þeir nemendur sem mættir voru í skólann tóku þátt og gáta þeir valið um að hlaupa frá 2.5 km til 10 km. Markmið með hlaupinu er að hvetja nemendur til þess að æfa hlaup og auka með því útiveru og hreyfingu og að kynna og skýra nauðsyn þess að hreyfa sig, reyna á líkama sinn og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Veður var með besta móti þegar hlaupið var háð og voru nemendur almennt mjög duglegir, flestir nemendur hlupu 5 km. og þó nokkrir hlupu heila 10 km.
Til baka








