Forsíða > Fréttir

Lið Njarðvíkurskóla í Skólahreysti

Fjórir nemendur urðu sigursælir í undankeppni Njarðvíkurskóla í Skólahreysti sem haldin var í íþróttahúsinu á dögunum. Það eru þau Elva Lísa Sveinsdóttir, Júlía Scheving Steindórsdóttir, Kristinn Sveinn Kristinsson og Magnús Már Traustason sem keppa fyrir hönd skólans í aðalkeppninni 8. mars. Skólahreysti er liðakeppni milli grunnskóla landsins og samanstendur hvert lið af tveimur strákum og tveimur stelpum sem öll þurfa að vera nemendur í 9. og/eða 10. bekk síns skóla. Keppt er í upphífingum, armbeygjum, dýfum, hreystigreip og hraðaþraut. Á síðasta ári endaði lið Njarðvíkurskóla í 56. sæti af þeim 105 liðum sem upphaflega tóku þátt.

Kristinn Sveinn, Júlía, Elva Lísa og Magnús Már


Til baka