Forsíða > Fréttir

Nemendur þrífa skólalóðina

Sem hluti af umhverfisstefnu Njarðvíkurskóla höfum við í nokkur ár farið út með nemendur og þrifið skólalóðina.  Með þessu verkefni höfum við tekið eftir því að nemendur bera meiri virðingu fyrir lóðinni og henda síður drasli þar.  Nemendur í 9. EJ fóru út með umsjónarkennaranum sínum núna í október og stóðu þau sig frábærlega.  Flottir krakkar þarna á ferðinni.

Flottir krakkar í 9. EJ


Til baka