Forsíða > Fréttir

Pítsaveisla hjá nemendum 1. bekkjar

Fyrir jól stóð Umferðarstofa fyrir Jóladagatali grunnskólanna á vefsíðunni www.umferd.is . Dagatalið, sem er í senn skemmtilegt og fræðandi fyrir börnin, inniheldur 24 spurningar sem allar snúa með einum eða öðrum hætti að umferðinni.

Umferðarstofa dró út heppna vinningshafa á hverjum degi en þeir fengu senda boðsmiða í bíó. Með því að merkja svör sín með nafni skóla og bekkjar gátu þátttakendur einnig komist í sérstakan bekkjarverðlaunapott. Í lok desember var síðan vinningsbekkurinn dreginn út.
 
Að þessu sinni fór aðalvinningurinn til Njarðvíkurskóla en það var Valur Axel Axelsson, í 1. SH, sem tók þátt í dagatalinu og skráði bekkinn sinn í verðlaunapottinn. Í dag heimsótti Umferðarstofa krakkana í 1. SH og færði þeim pítsur og DVD mynd. Það var óneitanlega mikill spenningur í loftinu þegar starfsmenn Umferðarstofu bar að garði enda ekki á hverjum degi sem slegið er til veislu á hefðbundnum skóladegi. Umferðarstofa óskar öllum þátttakendum öryggis og gæfu í umferðinni (frétt frá Umferðastofu).
Nemendur með fulltrúa frá Umferðarstofu

Til baka