Forsíða
> Fréttir
Til baka
Setning Ljósanætur
Nemendur og starfsfólk Njarðvíkurskóla tók að venju þátt í setningu Ljósanætur. Setningin fór fram við Myllubakkaskóla sl. fimmtudag og fórum við öll með grænar blöðrur meðferðis auk þess sem nemendur komu í einhverjum grænum fötum þar sem litur Njarðvíkurskóla er grænn. Hátíðin tókst vel til og eins og alltaf var mikil spenna fyrir því að sleppa blöðrunum. Til að undirbúa okkur fyrir sönginn fengum við Ásmund Valgeirsson, höfund lagsins "Velkomin á ljósanótt" til okkar á miðvikudeginum og hann söng með okkur lagið auk annarra laga. Myndir frá heimsókn Ása og setningunni við Myllubakkaskóla má sjá í myndasafni hér til hliðar.
| Blöðrunum sleppt |
Til baka







