Forsíða
> Fréttir
Til baka
Skólaslit Njarðvíkurskóla
Njarðvíkurskóla var slitið þriðjudaginn 8. júní við hátíðlega athöfn.
54 nemendur útskrifuðust með grunnskólapróf frá skólanum þetta vorið. Stór hópur nemenda fékk viðurkenningar fyrir góðan námsárangur, ástundun og hegðun. Skólinn á góðan hóp velunnara sem styrkja starfið með því að veita viðurkenningar á skólaslitum og eru þeim öllum færðar kærar þakkir fyrir stuðninginn. Að venju spiluðu nemendur Njarðvíkurskóla og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á hljóðfæri við skólaslitin.
Á skólaslitum var rifjað upp að skólinn fékk Grænfánann í annað sinn og næstu skref í umhverfismálum verður að skerpa á umhverfismennt í námskrám allra bekkja. Einnig var sagt frá því að kraftur var í félagslífi nemenda og lið nemenda stóðu sig vel í þeim keppnum sem þeir tóku þátt í. Nemendaráð og 10. bekkur tóku þátt í að undirbúa öskudagsskemmtun og íþróttadaginn og komu með breytingar á fyrirkomulagi daganna sem má segja að hafi hitt í mark hjá nemendum.
Nemendum, foreldrum og starfsfólki var þakkað samstarfið í vetur og skóla slitið með ósk um gott og gleðilegt sumar.
Til baka







