Forsíða > Fréttir

Skólastarf í dag, 26. janúar 2012

Skólinn er opinn í dag og hefðbundið skólastarf verður með þeim nemendum sem mæta. Vegna veðurs og ófærðar þá minnum við á viðbragðsáætlun vegna óveðurs sem er á heimasíðu skólans en þar segir:

Röskun á skólastarfi vegna óveðurs   
Þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á Suðurnesjum fylgjast Lögreglan og Almannavarnir gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf.   
Mikilvægt er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni.
Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í og úr skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilviksem eðlileg forföll.
Við slíkar aðstæður eru skólarnir opnir og þar er öruggt skjól fyrir börnin.
Mikið álag hefur verið á símkerfi skólans í morgun og vegna lokunar á Reykjanesbraut féll niður ferð nemenda í 4.-5. bekk í Mjólkursamsöluna og er því hefðbundinn skóladagur hjá þeim í dag.

Til baka