Skólastarf næstu daga
Föstudaginn 16. desember er föndur hjá öllum nemendum skólans og eru þau hjá umsjónarkennara meginhluta kennsludagsins. Mikilvægt er að nemendur séu með skæri, lím, liti í töskunni sinni þennan dag. Skóladagurinn er þó samkvæmt stundaskrá hvað varðar tímasetningar á upphafi og lok dags.
Mánudagurinn 19. desember er kennsla skv. stundaskrá en í hádeginu er öllum nemendum boðið í hátíðarmat þar sem starfsfólk skólans þjónar nemendum til borðs og salurinn er skreyttur fyrir matarboðið.
Þriðjudaginn 20. desember er jólahátíð skólans þar sem nemendur halda litlu jól í heimastofum og koma á sal til að dansa í kringum jólatréð. Nemendur í 1., 4.-5., 7. og 10. bekk mæta kl. 8:30 í heimastofur og hátíðinni lýkur kl. 10:30. Nemendur í 2.-3., 6., 8. og 9. bekk mæta kl. 9:30 í heimastofur og hátíðinni lýkur hjá þeim kl. 11:30. Nemendur í 5. bekk sem taka þátt í helgileiknum mæta kl. 8:30 og eru til kl. 11:00 þar sem þau sýna helgileikinn tvisvar sinnum.
| Frá jólahátíðinni í fyrra |
Til baka







