Forsíða > Fréttir

Starfsdagur

Miðvikudaginn 11. janúar er starfsdagur í Njarðvíkur- og Háaleitisskóla.  Kennarar og starfsfólk mun þá vinna að faglegum störfum s.s. frágangi námsmats auk annars og eru nemendur í fríi  Frístundaskóli er lokaður á starfsdeginum.

Nemendur fá vitnisburðarblöð sín fyrir haustönnina mánudaginn 16. janúar og eru foreldrar boðaðir til viðtals við umsjónarkennara þriðjudaginn 17. janúar.

Ný önn, vorönn, hefst mánudaginn 16. janúar og skiptast þá sérgreinahópar, s.s. saum/smíði, mynlist/heimilisfræði og sundhópar í þeim árgöngum sem við á.  Nýtt val hefst hjá nemendum í 9. -10. bekk og fá þeir nemendur nýja stundaskrá föstudaginn 13. janúar.


Til baka