Vorhátíð Njarðvíkurskóla
Vorhátíð Njarðvíkurskóla verður föstudaginn 4. júní nk. Nemendur mæta til umsjónarkennara kl. 10:15 þar sem farið verður yfir skipulag dagsins. Vorhátíðin hefst svo formlega á skrúðgöngu frá skólanum kl. 10:30 og eftir það fara nemendur í leiki og sprell á ýmsum stöðvum. Í boði verður meðal annars veltibíll sem Foreldrafélag Njarðvíkurskóla styrkir, ýmsar knattþrautir, andlitsmáling, hoppukastalar ofl. Nemendur 5. bekkjar verða með tombólu og kostar miðinn þar 50 kr. Einnig verður hjólaþraut og hljólaskoðun þar sem Krissi lögga kemur og skoðar hjólin. Skylt er að vera með hjálma í hljólaþrautinni. Í lok vorhátíðar mun foreldrafélagið grilla pulsur fyrir nemendur en foreldrar geta keypt pulsur á 100 kr. á meðan birgðir endast. Foreldrar eru velkomnir á vorhátíðina. Hátíðinni lýkur svo kl. 12:30. Frístundaskóli er fyrir nemendur sem þar eru skráðir eftir vorhátíðina.
| Hjólaskoðum á vorhátíðinni |
Til baka







