Forsíða
> Háaleitisskóli
Háaleitisskóli
Háaleitisskóli á Ásbrú er rekinn sem útibú frá Njarðvíkurskóla frá skólaárinu 2008-2009. Sumarið 2008 voru gerðar breytingar á fyrrverandi skólahúsnæði grunnskóla Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og sett þar á stofn grunnskóladeild fyrir yngri nemendur sem eiga heima á Ásbrú. Deildarstjóri er Sigfríður Sigurðardóttir en skólinn starfar undir stjórn skólastjóra Njarðvíkurskóla með sömu skólanámskrá og sambærilegt kennslufyrirkomulag og þar er.
Aðstaða skólans: Deildin hefur yfir að ráða 8 kennslustofum, íþróttasal til hreyfikennslu auk stjórnunarrýmis, aðstöðu sérfræðinga Fræðsluskrifstofu og skólahjúkrunarfræðings. Sumarið 2009 bættust við tvær sérgreinastofur, mötuneyti , fjölnota salur, og aðstaða fyrir forskóla Tónlistarskólans.







