Njarðvíkurskóli
Vetrarleyfi 23. og 26. október
Föstudaginn 23. október og mánudaginn 26. október er vetrarleyfi í Njarðvíkurskóla. Engin kennsla fer fram þessa daga og frístundaheimili skólans, bæði í skólanum og í Ösp, verða lokuð.
Gönguval á Þorbjarnarfell
Fimmtudaginn 15. október, fóru 19 nemendur í 8.–10. bekk í gönguvali í skemmtilega fjallgöngu á Þorbjarnarfell, sem oftast er kallað Þorbjörn. Fjallið er 243 metra hátt og var gangan um 5 km löng.
Gangan hófst við Selskóg og gengu nemendur þaðan upp á topp fjallsins. Þar var tekið myndastopp og nemendur fengu sér nesti áður en haldið var áfram niður Gylta stíginn. Að lokum var genginn um hálfur hringur í kringum fjallið á leiðinni til baka að bílunum.
Nemendur höfðu undirbúið sig fyrir gönguna með styttri gönguferðum í nærumhverfi skólans. Mikill kraftur var í hópnum og nemendur stóðu sig með prýði. Þeir nutu sín vel í fallegri náttúrunni og var gleðin greinileg, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Með nemendum í för voru íþróttakennararnir Heiðrún Rós og Þórir Rafn ásamt Benedikt Rúnari umsjónarkennara.
Svakalega lestrarkeppnin í 1.-7. bekk í Njarðvíkurskóla
Nemendur í 1.–7. bekk í Njarðvíkurskóla tóku þátt í lestrarátakinu Svakalegu upplestrarkeppninni sem stóð yfir frá 15. september til 6. október.
Nemendur stóðu sig mjög vel og lásu samtals 71.957 mínútur. Það jafngildir ótrúlega mörgum klukkustundum sem fóru í lestur og sýnir hversu mikill kraftur býr í nemendum okkar þegar þeir taka höndum saman að sameiginlegu markmiði.
Við héldum lokahátíð á sal skólans þar sem Gunnar Helgason rithöfundur var með okkur í liði. Hann sendi okkur myndband þar sem hann ávarpaði nemendur, hrósaði þeim fyrir frábæra frammistöðu og tilkynnti hver hlyti titilinn Svakalegasti lestrarárgangur Njarðvíkurskóla.
Svakalegasti lestrarárgangur Njarðvíkurskóla er 4. bekkur.
Nemendur í 1.-4. bekk halda skólalóðinni snyrtilegri
Undanfarnar vikur hafa nemendur í 1.–4. bekk Njarðvíkurskóla tekið þátt í skemmtilegu og mikilvægu umhverfisátaki þar sem áhersla hefur verið lögð á að halda skólalóðinni og nærumhverfi skólans hreinu og snyrtilegu.
Nemendur hafa farið út í kennslustundum og safnað rusli bæði á skólalóðinni og í skrúðgarðinum við skólann. Þau hafa sýnt mikinn dugnað og áhuga og staðið sig einstaklega vel í verkefninu.
Gul veðurviðvörun 14. október 2026
Ferð 7. bekkjar á Reyki
Nemendur í 7. bekk áttu einstaklega skemmtilega og eftirminnilega daga í Skólabúðum UMFÍ að Reykjum í Hrútafirði dagana 21.–24. september. Ferðin heppnaðist afar vel og var dagskráin fjölbreytt, skemmtileg og full af samveru og gleði.
Góð stemning ríkti í hópnum og nemendur tóku virkan þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum og uppákomum sem boðið var upp á. Mikið var hlegið, spjallað og skemmt sér saman og greinilegt að nemendur nutu þess að fá tækifæri til að kynnast betur og eiga góðar stundir saman.
Sundpartýið vakti mikla lukku, þar sem froðu var sprautað yfir nemendur og skapaðist mikil gleði og hlátur. Tískusýningin var einnig einn af eftirminnilegri þáttum ferðarinnar. Þar fengu stelpurnar það skemmtilega verkefni að gera strákana klára fyrir sýninguna áður en þeir stigu á svið. Þá var einnig haldið diskótek þar sem nemendur dönsuðu og skemmtu sér saman við mikla gleði og góða stemningu.
Samtalsdagur 8. október
Miðvikudaginn 8. október er samtalsdagur í Njarðvíkurskóla.
Forráðamenn bóka viðtal við umsjónarkennara í gegnum Námfús, en bókunarhnappur birtist á forsíðu appsins. Opnað verður fyrir bókanir 30. september og geta forráðamenn þá bókað sín viðtöl.
Forráðamenn sem hafa túlk í viðtalinu fá úthlutaðan tíma frá umsjónarkennara og fá tölvupóst á næstu dögum með tímasetningu.
Viðtöl fara fram í heimastofum nemenda. Þeir sem óska eftir viðtali við fag-, list- eða verkgreinakennara, sem einnig eru til viðtals þennan dag, hafa samband við skrifstofustjóra skólans og bóka viðtalið. Hægt er að hringja í síma 420-3000 eða senda póst á njardvikurskoli@njardvikurskoli.is.
Óski forráðamenn eftir samtali í TEAMS þarf að senda póst á umsjónarkennara og óska eftir slíku viðtali. Mikilvægt er þó að nemandinn taki einnig þátt í viðtalinu.
Nemendur eiga að mæta með forráðamönnum sínum í viðtalið.
Aðalfundur foreldrafélags Njarðvíkurskóla
Aðalfundur foreldrafélags Njarðvíkurskóla verður haldinn á sal skólans mánudaginn 12. október kl. 16:30-18:00 í sal Njarðvíkurskóla.
Dagskrá er eftirfarandi:
skýrsla stjórnar
ársreikningur
kosning nýrrar stjórnar
kosning formanns
önnur mál
Í framhaldi af aðalfundinum heldur Anna Laufey Stefánsdóttir fyrirlestur undir yfirskriftinni, Hvernig togar síminn svona í okkur? Fyrirlesturinn snýr að notkun snjalltækja meðal barna og námstækni innan skólans. Þá verður góður tími fyrir spurningar og umræðu.
Við hvetjum forráðamenn til að fjölmenna á aðalfundinn og á fyrirlesturinn.
Bestu kveðjur,
Starfsdagur í Njarðvíkurskóla þriðjudaginn 29. september
Þriðjudaginn 29. september næstkomandi er starfsdagur í Njarðvíkurskóla samkvæmt skóladagatali.
Á starfsdegi gefst starfsfólki skólans tækifæri til að vinna að faglegu starfi, undirbúningi og þróun skólastarfsins. Allir nemendur eiga því frí þennan dag og jafnframt verða frístundaheimilin í skólanum og Ösp lokuð þennan dag.
Lokun á heitu vatni – upplýsingar um skólastarf 9. september
Miðvikudaginn 9. september verður lokað fyrir heitt vatn í Ytri-Njarðvík frá kl. 04:00 vegna umfangsmikilla framkvæmda HS Veitna og HS Orku. Gert er ráð fyrir að heitt vatn komist aftur á innan 12–24 klukkustunda en það getur verið mismunandi eftir svæðum hvenær vatnið skilar sér að fullu.
Lokunin hefur áhrif á skólastarf í Njarðvíkurskóla og viljum við vekja athygli á eftirfarandi breytingum þennan dag:
Íþróttadagur Njarðvíkurskóla 2026
Íþróttadagur Njarðvíkurskóla var haldinn föstudaginn 4. september við frábærar aðstæður. Nemendur fóru á milli fjölbreyttra stöðva og tóku þátt í hinum ýmsu leikjum og þrautum sem reyndu á hreysti, snerpu, samvinnu og úthald sem voru skipulagðar af íþróttakennurum skólans.
Stöðvarnar voru bæði inni í skólanum, utandyra og í íþróttahúsinu. Góða veðrið setti svo sannarlega svip sinn á daginn og skapaði frábæra stemningu þegar nemendur kepptu, hvöttu hvert annað áfram og nutu dagsins saman.
Íþróttadagurinn tókst einstaklega vel og mikil gleði og jákvæðni einkenndi daginn. Að lokum stóð 10. ÍÞ uppi sem sigurvegari og fær því titilinn Íþróttabekkur Njarðvíkurskóla 2026.
Setning Ljósanætur í Njarðvíkurskóla
Ljósanótt var formlega sett í dag fimmtudaginn 3. september og var margt um að vera þegar nemendur og starfsfólk skólans komu saman til að fagna upphafi hátíðarinnar.
Dagurinn hófst í Njarðvíkurskóla með því að formaður og varaformaður nemendaráðs skólans, Rósa Kristín Jónsdóttir og Grétar Atli Sigurbjörnsson, drógu Ljósanæturfánann að húni við skólann.
Að því loknu héldu nemendur í 3., 7. og 10. bekk í skrúðgarðinn þar sem þeir komu saman með jafnöldrum sínum úr öllum grunnskólum Reykjanesbæjar, ásamt elsta árgangi leikskóla bæjarins.
Í skrúðgarðinum var boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Bæjarstjóri flutti ávarp, Ljósanæturfáninn var dreginn að húni og Páll Óskar steig á svið og skemmti viðstöddum auk þess sem fleira skemmtilegt var á dagskrá.
Eftir hádegi hélt síðan nemendaráð skólans skemmtilegt Ljósanæturpartý þar sem allir nemendur skólans komu saman og dönsuðu undir stjórn þeirra fyrir framan skólann ásamt því að syngja og dansa kónga og náði röðin langt inn í skrúðgarðinn fyrir neðan skólann.
Auk þessarar dagskrár í dag 3. september hefur margt annað verið í gangi fyrr í vikunni. Meðal annars fengu allir nemendur í 8.-10.bekk heimsókn frá Samfélagslöggunni og fulltrúum í Fjörheimum þar sem þau ræddu saman um komandi daga í kringum Ljósanótt.
Íþróttadagur 4. september
Námfús – nýtt námsumsjónarkerfi skólans
Í Njarðvíkurskóla hefur Námfús tekið við af InfoMentor sem námsumsjónarkerfi skólans. Kerfið einfaldar aðgengi að upplýsingum og veitir nemendum og forráðamönnum góða yfirsýn yfir skóladaginn, námið og námsframvinduna.
Allir forráðamenn munu fá sent lykilorð þriðjudaginn 25. ágúst til að skrá sig inn í Námfús.
Fyrir nemendur
Í Námfús geta nemendur nálgast helstu upplýsingar um námið sitt á einum stað. Þar má meðal annars finna:
- stundatöflu og verkefni
- mætingu og námsmat
- kennsluáætlanir og námsefni
- dagatal og viðburði
- upplýsingar sem tengjast daglegu skólastarfi
Markmiðið er að nemendur hafi skýra yfirsýn yfir það sem fram undan er og geti auðveldlega fylgst með námi sínu.
Fyrir forráðamenn
Námfús auðveldar forráðamönnum að fylgjast með skólagöngu barnsins og eiga samskipti við skólann. Þar má meðal annars nálgast:
- skilaboð frá skólanum og kennurum
- stundatöflu og upplýsingar um mætingu
- upplýsingar um nám og námsmat
- dagatal og viðburði
- upplýsingar um samtalsdaga
- aðrar upplýsingar sem tengjast skólastarfi barnsins
Allt á einum stað
Með Námfús eru helstu upplýsingar um skóladaginn aðgengilegar á einum stað. Það auðveldar nemendum og forráðamönnum að fylgjast með því sem er að gerast í skólanum og dregur úr þörfinni fyrir að leita upplýsinga á mörgum stöðum.
Innskráning og app
- Námfús er aðgengilegt á www.namfus.is og í Námfús-appinu fyrir snjalltæki.
Skólasetning Njarðvíkurskóla
Skólasetning Njarðvíkurskóla fer fram þriðjudaginn 25. ágúst. Nemendur mæta ásamt forráðamönnum í heimastofur þar sem umsjónarkennarar verða með skólakynningu. Á skólakynningum verður farið yfir ýmist atriði sem tengist skólastarfi í Njarðvíkurskóla og yfir helstu áherslur í hverjum og einum árgangi. Að kynningum loknum verða nemendur áfram í skólanum með umsjónarkennurum (sjá tímasetningar hér að neðan). Þar verður lögð áhersla á hópefli, tengslamyndun og að styrkja sambönd nemenda við umsjónarkennara og stuðningsfulltrúa. Nemendur í 1.-7. bekk eru hvattir til að taka með sér nesti.
Frístundaheimili í Njarðvíkurskóla og Ösp verða opin frá 10:35 til kl. 16:15 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.
Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu hjá öllum nemendum miðvikudaginn 26. ágúst kl. 8:15.
Tímasetningar á skólasetningu:
Nemendur í 1.-4. bekk mæta kl. 8:15 og verða í skólanum til kl. 10:35.
Nemendur í 5.-7. bekk mæta kl. 8:55 og verða í skólanum til kl. 11:15.
Nemendur í 8.-10. bekk mæta kl. 9:55 og verða í skólanum til kl. 11:55.
Nemendur í Ösp mæta á mismunandi tímasetningum eftir samtal við forráðamenn.
Skólabyrjun grunnskóla í Reykjanesbæ
Nú líður senn að því að nemendur grunnskóla Reykjanesbæjar hefji störf. Þriðjudaginn 25. ágúst eru skólasetningar en nánari upplýsingar fyrir hvern skóla eru birtar á heimasíðum þeirra. 301 fyrstu bekkingar eru nú að hefja grunnskólanám og taka sín fyrstu skref inn í grunnskólana okkar. 235 af þeim hafa mætt í sumarfrístund og fengið tækifæri til þess að kynnast nýjum skólafélögum og aðlagast nýjum aðstæðum í skólanum sínum.
Þegar þessi frétt er skrifuð eru nemendur í grunnskólunum okkar 2757 sem er sami fjöldi og var í skólabyrjun fyrir ári síðan.
Hægt er að nálgast skóladagatal hvers skóla inn á heimasíðum þeirra. Vert er að benda á að nokkra þætti sem eru sameiginlegir í öllum skólum:
•	3. september – Setning Ljósanætur
•	23. og 26. október – Vetrarfrí
•	18. desember – Jólahátíð og jólafrí nemenda hefst að henni lokinni
•	11. og 12. febrúar – Vetrarfrí
•	30. apríl – Baun hefst
•	10. júní – Skólaslit
Nýtt námsumsjónarkerfi, Námfús, verður prófað í Akurskóla, Háaleitisskóla, Heiðarskóla, Myllubakkaskóla, Njarðvíkurskóla og Stapaskóla í upphafi skólaárs. Holtaskóli styðst áfram við Mentor kerfið að sinni. Markmiðið með innleiðingu á Námfús er að nemendur, kennarar og foreldrar fái notendavænt viðmót sem gefi betri yfirsýn yfir nám, verkefni og framvindu nemenda. Kerfið styður einnig við ýmsa þætti í starfi skólanna ásamt því að fylgja þróun og nýsköpun í skólastarfinu. Innleiðingin mun krefjast þolinmæði frá skólasamfélaginu þar sem við erum öll að læra á það og þökkum við fyrir hana. Skólarnir munu veita nánari upplýsingar um kerfið og framvinduna í innleiðingu þess.
Flestum nemendum og foreldrum finnst gott að komast aftur í sínar venjur hausts og vetrar þó erfitt geti reynst að kveðja sumarið. Framundan eru arkandi börn um allan bæ með skólatöskur á bakinu og því eru ökumenn beðnir um að sýna sérstaka aðgát í nágrenni skóla.
Vilhjálmur Ottó Lúðvíksson - Minning
Í dag kveðjum við Vilhjálm Ottó Lúðvíksson, nemanda við Njarðvíkurskóla, sem var bráðkvaddur 1. júlí 2026. Vilhjálmur kom til okkar í upphafi 6. bekkjar og tilheyrði stórum hópi nemenda í 9. bekk sem kvaddi kæran bekkjarfélaga og vin í minningarstund fyrr í júlí.
Vilhjálmur Ottó var hæglátur nemandi sem kom ávallt fram af virðingu, ábyrgð og vinsemd í sínum verkum og framkomu í skólastarfinu. Á þessum árum eignaðist hann góðan og traustan vinahóp sem á erfitt með að sætta sig við að svo ungur drengur hafi fallið frá.
Hugur okkar allra er hjá fjölskyldu Vilhjálms og vinum og sendum við þeim hlýjar kveðjur og styrk á þessum erfiðu tímum. Minningin um góðan dreng mun lifa áfram með okkur og við varðveitum hana með þakklæti og virðingu.
Útför Vilhjálms fer fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, föstudaginn 24. júlí, kl. 13:00.
Opnaður hefur verið söfnunarreikningur. Söfnunarféð verður meðal annars nýtt til að kaupa krans með kveðju frá samnemendum Vilhjálms. Ef fjármunir verða umfram þann kostnað verður afganginum ráðstafað í samráði við foreldra Vilhjálms til minningar um hann eða í þágu fjölskyldunnar.
Frjáls framlög eru vel þegin. Reikningsupplýsingar eru:
Reikningur: 0511-14-128131
Kennitala: 160775-4679
Skoðunarmaður reikningsins er Helga Kolbeinsdóttir prestur í Njarðvíkurkirkju og gjaldkeri söfnunarinnar er Elín Kristjánsdóttir.
Söfnunarreikningurinn verður opinn næstu vikur og eru öll frjáls framlög vel þegin.
Sjálfsmatsskýrsla Njarðvíkurskóla 2025-2026
Sjálfsmatsskýrsla Njarðvíkurskóla fyrir skólaárið 2025–2026 hefur verið birt og er aðgengileg á heimasíðu skólans.
Skýrslan gegnir lykilhlutverki í að tryggja gæði skólastarfsins og er mikilvægur þáttur í stöðugri þróun og umbótum innan skólans. Hún dregur fram helstu niðurstöður innra mats sem byggir á fjölbreyttum gögnum frá nemendum, forráðamönnum og starfsfólki.
Unnið er út frá stefnu Njarðvíkurskóla og menntastefnu Reykjanesbæjar og eru meginmarkmið skýrslunnar að greina styrkleika skólans, varpa ljósi á umbótatækifæri og styðja við áframhaldandi faglegt starf og framþróun.
Lokun skrifstofu í sumar
Skrifstofa Njarðvíkurskóla verður lokuð frá og með 22. júní til og með 4. ágúst. Skólasetning verður mánudaginn 25. ágúst 2026.
Sumarfrístund fyrir nemendur sem þar eru skráðir og hefja nám í 1. bekk hefst 11. ágúst.
Skólaslit Njarðvíkurskóla vor 2026
Skólaslit Njarðvíkurskóla fóru fram við hátíðlega athöfn á sal skólans miðvikudaginn 10. júní hjá nemendum í 1.-10. bekk.
Skólaslit hjá 1.-10. bekk var skipt upp í fjóra hluta: 1.-3. bekkur, 4.-6. bekkur, 7.-9. bekkur og að lokum 10. bekkur.
Skólaslitin byrjuðu á sal þar sem Helena Rafnsdóttir deidarstjóri yngsta stigs ávarpaði nemendur í 1.-3. bekk, Kristín Blöndal deildarstjóri í Ösp ávarpaði nemendur í 4.-6. bekk og Jóhann Gunnar Sigmarsson deildarstjóri elsta stigs ávarpaði nemendur í 7.-9. bekk. Að því loknu fóru nemendur ásamt forráðamönnum í sínar heimastofur þar sem umsjónarkennari fór yfir hápunkta skólaársins og afhendi nemendum sinn vitnisburð.
Á öllum skólaslitum voru flutt tónlistaratriði þar sem nemendur spiluðu og stóðu sig einstaklega vel og þökkum við í skólanum þeim fyrir þeirra flutning. Á skólaslitum hjá 1.-3. bekk voru það Oddur Líndal Sverrisson á píanó og Oliver Aron Kalnins á klarínett, hjá 4.-6. bekkjar spilaði Brynhildur Hrönn Þorradóttir á saxafón og hjá 7.-9. bekkjar spilaði Elin Mia Y. Hardonk á selló og spilaði Geirþrúður Bogadóttir tónlistarkennari á píanó undir hjá henni.