Bókasafn

Skólasafnið er upplýsinga- og menningarmiðstöð skólans og er þar alltaf líf og fjör. Nemendur koma reglulega á bókasafnið og fá lánaðar bækur í tengslum við námið eða sér til skemmtunar og afþreyingar. Þar finna þeir svör við ýmsum spurningum sem tengjast náminu eða sem koma upp í erli dagsins. Nemendur vinna að ýmis konar verkefnum þar sem mikil áhersla er lögð á upplýsingalæsi. Þeir læra að breyta upplýsingum í þekkingu með því að afla, meta og flokka upplýsingar og skila niðurstöðum á markvissan hátt.

Kennarar fá lánaðar bækur, hljóðbækur og margmiðlunarefni til að örva námsáhuga nemendanna.

Bókaafnið er opið frá kl. 8:00 til kl. 14:10 alla daga.

Starfsmaður á bókasafni: Vilborg Sævarsdóttir