Skóladagatal

Hérna er skóladagatal fyrir skólaárið 2023-2024 í Njarðvíkurskóla.

- Skólaárið 2023-2024

--------------------------------
Útskýring á skóladagatali fyrir skólaárið 2023-2024
Starfstími nemenda í grunnskóla er á hverju skólaári að lágmarki níu mánuðir og eiga skóladagar nemenda að vera eigi færri en 180. Fjöldi skóladaga nemenda er lögbundinn. Skóladagar nemenda eru á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní. Skipting milli kennsludaga og annarra skóladaga nemenda er á ábyrgð skólastjóra með samþykki frá starfsmönnum í Njarðvíkurskóla, skólaráði Njarðvíkurskóla og fræðsluráði Reykjanesbæjar.

Hérna er útskýring á uppbrotsdögum, skertum skóladögum, starfsdögum og vetrarleyfi:
Uppbrotsdagar eru einstaka skóladagar þar sem stundatöflu nemenda er breytt verulega en upphaf og lok skóladags er því næst þau sömu. Uppbrotsdagar eru nýttir til óhefðbundins skólastarfs s.s. þemadaga og íþróttadaga. Uppbrotsdagar geta mest orðið 10 dagar á skólaárinu. Í Njarðvíkurskóla verða átta uppbrotsdagar á skólaárinu 2023-2024 og eru þeir tilgreindir með (U) á skóladagatalinu. Frístundaheimili í Njarðvíkurskóla og Ösp eru opin á uppbrotsdögum.
- Uppbrotsdagar á skólaárinu eru: Vináttudagur (8. nóvember), föndurdagur (13. desember), þemadagar (16., 17. og 18. apríl), íþróttadagur (3. maí) og útinám og ferðir (3. og 4. júní).

Skertir skóladagar nemenda teljast ekki til uppbrotsdaga og geta verið tíu talsins. Með skertum skóladögum m.a. átt við skólasetningar- og skólaslitadaga, samtalsdaga og annað sem skólastjóri ákveður í hverjum skóla. Í Njarðvíkurskóla verða tíu skertir skóladagar á skólaárinu 2023-2024 og eru þeir tilgreindir með bláum lit á skóladagatalinu.
- Frístundaheimili í Njarðvíkurskóla og Ösp eru opin á eftirfarandi skertum skóladögum: Samtalsdagar (10. október og 30. janúar), skertir dagar (31. október og 16. maí), öskudagur (14. febrúar) og vorhátíð (31. maí).
- Frístundaheimili í Njarðvíkurskóla og Ösp eru lokuð á eftirfarandi skertum skóladögum: Skólasetning (22. ágúst), jólahátíð (20. desember), árshátíð (21. mars) og skólaslit (5. júní).

Vetrarleyfi er dagana 20. október, 23. október og 16. febrúar. Engin kennsla er þessa daga og frístundaheimilin eru lokuð. Vetrarleyfisdagar eru tilgreindir með rauðum lit á skóladagatalinu.

Starfsdagar eru fimm á starfstíma nemenda. Engin kennsla er þessa daga og frístundaheimilin eru lokuð. Starfsdagar er tilgreindir með gulum lit á skóladagatalinu.
- Starfsdagar á skólaárinu eru: 27. september, 23. nóvember, 15. janúar, 15. febrúar og 29. maí.

Við gerð skóladagatala er reynt að dreifa uppbrotsdögum, skertum nemendadögum, vetrarleyfisdögum og starfsdögum á vikudagana yfir skólaárið.