Opnunartími og frímínútur

Opnunartími skólahúsnæðis, frímínútur og hádegishlé

Öllum nemendum er hleypt inn í skólann rétt fyrir kl. 8:00. Skólaliðar opna kennslustofur nemenda í 1. – 7. bekk en á elsta stigi eru kennslustofur opnaðar um leið og kennsla hefst kl 8:15. Skólaliðar hafa umsjón með nemendum þar til kennsla hefst. Í frímínútum eru kennslustofur ætíð læstar og kennarar fylgja hópum fram í anddyri.

Allir nemendur eru í morgunfrímínútum á sama tíma, kl. 9:35 – 9:55. Skólaliðar fara út í frímínútur með börnunum, þeir eru til taks ef eitthvað kemur upp á og aðstoða við leiki. Nemendum í 7.-10. bekk ber ekki að fara út í frímínútur.

Hádegishlé er 11:15 – 12:00 hjá yngri deildum og kl. 12:00 – 12:40 hjá þeim eldri. Skólaliðar, stuðningsfulltrúar og kennarar taka þátt og aðstoða í matarhléum.

Reiknað er með að nemendur mæti stundvíslega í skólann.