8. bekkur fór á skauta í Aðventugarðinum

Skautaferð
Skautaferð

Nemendur í 8.AÁ og 8.HH fóru á skauta í Aðventugarðinum í Reykjanesbæ 8. desember í björtu og fallegu en nokkuð köldu veðri. Allir skemmtu sér konunglega eins og má sjá á meðfylgjandi myndum. Margir sýndu frábær tilþrif á svellinu og dagurinn var svo kláraður með heitu kakói og piparkökum áður en haldið var inn í helgina.

Mælum eindregið með þessari skemmtun fyrir allar fjölskyldur.