Árshátíð Njarðvíkurskóla 2022 - Stór dagur á morgun

Mynd frá árshátíðinni 2019
Mynd frá árshátíðinni 2019

Árshátíð Njarðvíkurskóla verður haldin á morgun fimmtudaginn 7. apríl kl. 12.00. Hefðbundin kennsla fellur niður þennan dag en nemendur mæta í sínar heimastofur kl. 11:30. Forráðamenn mæta út í íþróttahús og koma sér fyrir í salnum. Fjölmargir nemendur hafa þó hlutverkum að gegna fyrr um morguninn s.s. að vinna að uppsetningu eða æfa sýningaratriði. Þeir mæta því um morguninn samkvæmt fyrirmælum umsjónarkennara.

Skemmtidagskrá hefst stundvíslega kl. 12:00 í íþróttahúsi við Njarðvíkurskóla og verða þar frátekin sæti fyrir hvern árgang en gestir þeirra fá sæti í stúku. Gera má ráð fyrir að dagskrá í íþróttahúsi verði í um 60 mínútur.

Forráðamenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í hátíðarhöldunum með okkur. Eftir dagskrá í íþróttahúsi eru nemendur í umsjá forráðamanna sinna. Afar og ömmur og aðrir fjölskyldumeðlimir eru að sjálfsögðu líka velkomin.

Það hefur skapast sú hefð að hafa kaffiveitingar í skólanum fyrir árshátíðargesti að skemmtiatriðum loknum. Í ár verður boðið upp á muffins sem nemendur skólans hafa bakað og öl/kaffi. Á meðan á kaffiveitingum stendur er árshátíðargestum boðið að skoða nýtt og endurbætt starfsmannarými.

Við vonumst til að eiga skemmtilegan dag og minnum nemendur á að mæta stundvíslega og snyrtilega klædd.

Sjáumst á morgun!