Bekkjarnámskrár fyrir skólaárið hafa verið birtar á heimasíðunni

Mennta- og barnamálaráðuneytið gefur út aðalnámskrár grunnskóla á grundvelli laga um viðkomandi skólastig. Aðalnámskrár hafa ígildi reglugerðar og í þeim er kveðið nánar á um útfærslu laga og reglugerða. Þær kveða m.a. á um markmið og fyrirkomulag skólastarfs, kennsluskipan og viðmið um námskröfur og námsframvindu. Öllum grunnskólum er skylt að gefa út skólanámskrá. Skólanámskrá Njarðvíkurskóla skiptist í fjóra hluta: almennan hluta, starfsáætlun skóla, bekkjarnámskrár og starfsmannahandbók (sem er innanhúsrit).

Bekkjarnámskrár er skipt eftir árgöngum. Þar koma fram koma m.a. fram bakgrunnsupplýsingar, viðmiðunarstundaskrá, læsisstefna Njarðvíkurskóla, námsmat, lykilhæfni, hæfniviðmið hverjar námsgreinar, kennsluefni, kennslugögn, kennsluhættir, námsaðlögun og námsmat.

Bekkjarnámskrár fyrir alla árganga fyrir skólaárið 2022-2023 hafa nú verið birtar á heimasíðu skólans og hægt er að smella hér til að nálgast þær.