Dagur íslenskrar tungu 2022

Dagur íslenskrar tungu í Njarðvíkurskóla
Dagur íslenskrar tungu í Njarðvíkurskóla

Að tillögu menntamálaráðherra ákvað ríkisstjórn Íslands, haustið 1995, að 16. nóvember ár hvert, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, yrði dagur íslenskrar tungu. Haldið var upp á daginn í Njarðvíkurskóla í dag með gleðistund á sal. Nemendur sungu, lásu upp ljóð, spiluðu á hljóðfæri, sýndu stuttmyndir og margt fleira. Þá voru góðir gestir sem stigu á stokk en elstu nemendur á leikskólanum Gimli sungu Dropalagið og fluttu ljóðið Famtíð bjarta eftir Sindra Birgisson. Þetta er í 15. skipti sem nemendur á Gimli heimsækja okkur á degi íslenskrar tungu.

Hátíðin var tvískipt, fyrst 1.-6. bekkur og síðan 7.-10. bekkur.

Dagskrá yngra stigs þar sem kynnar voru Íris Björk og Yasmin Petra.
- Allir sungu Íslenskuljóðið eftir Þórarinn Eldjárn. 
- Nemendur í 1. bekk sungu lagið, Snati og Óli.
- Nemendur af leikskólanum Gimli sungu sungu Dropalagið og fluttu ljóðið Famtíð bjarta eftir Sindra Birgisson.
- Ísabella Saga nemandi í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar spilaði lagið Fljúga hvítu fiðrildin sem er íslenskt þjóðlag á trompett. Kennarinn hennar, Þórarna Salóme Brynjólfsdóttir, lék með á píanó.
- Nemendur í 4. bekk fluttu vísuna Buxur, vesti, brók og skór.
- Þorgerður Tinna í 8. ÞBI las æviágrip Jónasar Hallgrímssonar og Kristjana Ása í 8. ÞBI flutti ljóð eftir Jónas Hallgrímsson.
- Leó, Harpa Rós og Jón Ingi nemendur í 6. bekk lásu ljóð.
- Nemendur í 2. bekk sungu fyrstu tvö erindin í Sprengisandi
- Allir sungu Skólasöng Njarðvíkurskóla Gylfa Guðmundsson, fyrrum skólastjóra Njarðvíkurskóla.

Dagskrá eldra stigs þar sem kynnar voru Íris Björk og Yasmin Petra:
- Allir sungu Íslenskuljóðið eftir Þórarinn Eldjárn. 
- Þorgerður Tinna í 8. ÞBI las æviágrip Jónasar Hallgrímssonar og Kristjana Ása í 8. ÞBI flutti ljóð eftir Jónas Hallgrímsson.
- Elísa Natnicha Róbertsdóttir nemandi í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar spilaði á píanó, Marsinn eftir Tchaikovsky.
- Nemendur í 9. bekk voru með spurningarkeppnina Kappsmál milli nemenda og starfsmanna.
- Allir sungu Skólasöng Njarðvíkurskóla Gylfa Guðmundsson, fyrrum skólastjóra Njarðvíkurskóla.
- Nemendur í 10. bekk sýndu stuttmyndir úr Gíslasögu.
- Dagskráin endaði á spurningarkeppni á milli kennara og nemenda undir stjórn nemendaráðs.