Dagur stærðfræðinnar var haldinn hátíðlegur í Njarðvíkurskóla 7. febrúar

Sigurvegarar 2020
Sigurvegarar 2020

Markmið með degi stærðfræðinnar er tvíþætt. Að vekja nemendur og sem flesta aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar í samfélaginu, einnig að fá nemendur til að koma auga á möguleika stærðfræðinnar og sjái hana í víðara samhengi.

Á degi stærðfræðinnar voru allir kennarar í Njarðvíkurskóla hvattir til að vinna að stærðfræðilegum viðfangsefnum og horfa til þess að stærðfræði má sjá í flestum viðfangsefnum ef sett eru upp stærðfræðigleraugun. Þemað í ár hjá Fleti, samtökum stærðfræðikennara var mynstur.

Í tilefni af deginum var stærðfræðigetraun meðal nemenda, þar sem nemendur í giskuðu á fjölda Lego-kubba í plastkassa. Fjöldi kubba var 76.

Vinningshafar fengu bíómiða í Sambíóum Keflavík á sýningu að eigin vali.

Sigurvegarar í ár eru: Elfar Þór Jónsson 1.HT, Elze Andrijauskaité 4.EA, Hildur Rún Ingvadóttir 7.ÞBI, Guðmundur Leo Rafnsson 8.AÁ og Guðmundur Hilmar Vilhjálmsson 9.ÞRH.