Forvarnarstarf Snigla, Sjóvár og Samgöngustofu

Frá forvarnarfræðslu Snigla
Frá forvarnarfræðslu Snigla

Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar heimsóttu nemendur í 7.-10. bekk í Njarðvíkurskóla og voru með forvarnarfræðslu er varðar léttbifhjól í 1. flokki (vespur) um notkun þeirra, öryggi, umferðareglur, hættur og fleira. Fræðslan var í samstarfi við Sjóvá og Samgöngustofu. Guðrún Ámundadóttir og Vilberg Kjartansson mættu fyrir hönd samtakana.

Í fræðslunni var lögð mikil áhersla á að nota viðurkennda bifhjólahjálma og þar til gerðan búnað, fara eftir umferðareglunum, hvernig haga sér á göngustígum í kringum gangandi vegfarendur og reiðhjólafólk og gæta fylgsta öryggis. Eins var lögð áhersla á vera sjálfum sér og öðrum til fyrirmyndar í umferðinni.