Gjöf frá fyrrverandi nemanda

Kristín Blöndal og Lilja Líf
Kristín Blöndal og Lilja Líf

Á aðventunni fékk sérdeildin Ösp veglega gjöf frá Lilju Líf Aradóttur, fyrrverandi nemanda í Ösp. Lilja Líf gaf sérdeildinni körfuboltatæki sem er mikið notað af nemendum í leik og starfi.

Njarðvíkurskóli og sérdeildin Ösp þakkar Lilju Líf og fjölskyldu hennar kærlega fyrir gjöfina.