Gönguval á Þorbjarnarfell

Fimmtudaginn 15. október, fóru 19 nemendur í 8.–10. bekk í gönguvali í skemmtilega fjallgöngu á Þorbjarnarfell, sem oftast er kallað Þorbjörn. Fjallið er 243 metra hátt og var gangan um 5 km löng.
Gangan hófst við Selskóg og gengu nemendur þaðan upp á topp fjallsins. Þar var tekið myndastopp og nemendur fengu sér nesti áður en haldið var áfram niður Gylta stíginn. Að lokum var genginn um hálfur hringur í kringum fjallið á leiðinni til baka að bílunum.
 
Nemendur höfðu undirbúið sig fyrir gönguna með styttri gönguferðum í nærumhverfi skólans. Mikill kraftur var í hópnum og nemendur stóðu sig með prýði. Þeir nutu sín vel í fallegri náttúrunni og var gleðin greinileg, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
 
Með nemendum í för voru íþróttakennararnir Heiðrún Rós og Þórir Rafn ásamt Benedikt Rúnari umsjónarkennara.
Það var því ánægjuleg og góð útivera sem reyndi á þol og þrautseigju nemenda og gaf þeim um leið tækifæri til að njóta náttúrunnar saman.