Hildigunnur og Kristín fulltrúar Njarðvíkurskóla

Íris, Hildigunnur og Kristín
Íris, Hildigunnur og Kristín

Í vetur hafa nemendur í 7. bekk verið að æfa sig í framsögn og upplestri sem er liður í Stóru upplestrarkeppninni. Í upphafi vikunnar tóku þeir þátt í bekkjarkeppnum þar sem 12 fulltrúar voru valdir til að keppa í skólakeppninni um að verða fulltrúar Njarðvíkurskóla á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem verður haldin í Berginu, Hljómahöll 11. mars.

Í skólakeppninni sem haldin var á sal Njarðvíkurskóla dag voru Hildigunnur Eir Kristjánsdóttir og Kristín Arna Gunnarsdóttir valdar sem fulltrúar skólans og til vara Íris Björk Davíðsdóttir. Dómarar í keppninni voru Hafdís Garðarsdóttir fyrrum kennari í Njarðvíkurskóla, Ástríður Helga Sigurðardóttir íslenskukennari og Anna Hulda Einarsdóttir kennsluráðgjafi hjá Reykjanesbæ. Valið var ekki auðvelt hjá dómurum keppninnar en þátttakendur stóðu sig allir mjög vel sem og áhorfendur en það voru nemendur í 6. og 7. bekk. Sandra Maria Rawluszko las ljóð á pólsku.

Njarðvíkurskóli óskar stúlkunum til hamingju og góðs gengis í lokakeppninni.