Íþróttadagur í Njarðvíkurskóla

Íþróttadagur 2023
Íþróttadagur 2023

Það var líf og fjör í Njarðvíkurskóla föstudaginn  19. maí en þá fór fram árlegur íþróttadagur skólans. Íþróttadagurinn fer þannig fram að allir bekkir skólans keppa í ýmsum þrautum. Þrautirnar í ár voru bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Hver bekkur var með sinn lit og setti það skemmtilegan brag á daginn. Að lokum var íþróttabekkur Njarðvíkurskóla krýndur en það er sá bekkur sem fékk flest stig í keppnum dagsins. Í ár voru það nemendur í 9.MRF sem unnu bikarinn góða. 10. bekkur endaði í 2. sæti og 9.HB í 3. sæti.

Myndasafn fylgir fréttinni.