Jólahátíð 20. desember

Jólahátíð Njarðvíkurskóla verður fimmtudaginn 20. desember. Þetta er skertur nemendadagur svo nemendur mæta á jólahátíðina og fara svo heim. Frístundaskólinn er lokaður þennan dag bæði yngri deild sem og frístundaskólinn í Ösp.

Skipulag jólahátíðar er eftirfarandi:
- Nemendur í 1., 2., 5., 7. og 9. bekk mæta kl. 8:30 og eru til 10:20.
- Nemendur í 3., 4., 6., 8. og 10. bekk mæta kl. 9:40 og eru til 11:00.

Nemendur eru bæði á stofujólum þar sem það er lesin upp jólasaga, skipts á pökkum og nemendur koma með smákökur og gos/safa til að gæða sér á. Svo er farið á sal þar sem nemendur í 5. bekk sýna helgileik. Lesið er jólaljóð og svo er tónlistaratriði. Eftir það dansa allir í kringum jólatréð og það er aldrei að vita nema jólasveinarnir kíki í heimsókn.

Að lokinni jólahátíð hefst jólafrí hjá nemendum og starfsmönnum skólans. Skólastarf hefst aftur eftir jólafrí fimmtudaginn 3. janúar 2019.

Starfsfólk Njarðvíkurskóla óska nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar.