Jólahátíð 17. desember og jólafrí

Njarðvíkurskóli
Njarðvíkurskóli

Föstudaginn 17. desember er jólahátíð Njarðvíkurskóla. Þetta er skertur nemendadagur svo nemendur mæta á jólahátíðina og fara svo heim að henni lokinni. Frístundaskólinn er lokaður þennan dag bæði yngri deild sem og frístundaskólinn í Ösp.

Skipulag jólahátíðar er eftirfarandi:
Nemendur í 1.,2.,3. og 10. bekk mæta kl. 8:30 eru til kl. 10:00
Nemendur í 4.,5.,6.,7.,8. og 9. bekk mæta kl. 10:15 og eru til kl. 11:15

Upplýsingar koma frá hverjum umsjónakennara varðandi hvað nemendur eiga koma með á jólahátíðina.

Að lokinni jólahátíð hefst jólafrí hjá nemendum og starfsmönnum skólans. Skólastarf hefst samkvæmt stundatöflu eftir jólafrí mánudaginn 3. janúar 2022.

Starfsfólk Njarðvíkurskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum góðar stundir og samstarfið á árinu sem er að líða.