Jólahátíð Njarðvíkurskóla

Jólahátíð Njarðvíkurskóla
Jólahátíð Njarðvíkurskóla

Jólahátíð Njarðvíkurskóla verður miðvikudaginn 20. desember. Þetta er skertur nemendadagur svo nemendur mæta á jólahátíðina og fara svo heim að henni lokinni. Frístundaheimilin eru lokuð þennan dag bæði yngri deild sem og frístundaheimilið í Ösp.

Skipulag jólahátíðar er eftirfarandi:
Nemendur 1.b, 3.b, 5.b,7.b, og 10. bekk mæta kl. 9:00-10:30
Nemendur í 2. b, 4.b, 6.b, 8.b, og 9.b mæta kl. 9:45-11:15

Upplýsingar koma frá hverjum umsjónarkennara varðandi hvað nemendur eiga koma með á jólahátíðina. Allir nemendur ganga inn um yngri barna inngang.

Að lokinni jólahátíð hefst jólafrí hjá nemendum og starfsmönnum skólans. Skólastarf hefst samkvæmt stundatöflu eftir jólafrí miðvikudaginn 3. janúar 2024.

Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar.

Hátíðarkveðjur,
Stjórnendur Njarðvíkurskóla.