Jón Ingi Davíðsson hlaut vinning í eldvarnargetraun

Kristín Þórunn, Jón Ingi og Jóhann Sævar
Kristín Þórunn, Jón Ingi og Jóhann Sævar

Í dag á 112 deginum kom Jóhann Sævar Kristbergsson verkefnastjóri Eldvarnaeftirlits hjá Brunavörnum Suðurnesja færandi hendi þar sem Jón Ingi Davíðsson nemandi í 3. KK var dreginn út í Eldvarnargetraun sem er á vegum Landssambands slökkviliðs – og sjúkraflutningamanna. Í nóvember á hverju ári heimsækja fulltrúar frá Brunavörnum Suðurnesja nemendur í 3. bekk, fræða þá um eldvarnir heimilanna og helstu hættur sem ber að varast. Að lokinni þeirri heimsókn fá nemendur eldvarnargetraun sem þeir fylla út og senda síðan til Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Til hamingju Jón Ingi.