Landinn í heimsókn á þorranum

Þorrinn í Njarðvíkurskóla
Þorrinn í Njarðvíkurskóla

Í dag var síðasti dagur Læsisviku skólans. Þema vikunnar var Þorrinn og voru fjölbreytt verkefni unnin þar sem áherslur voru á að efla enn frekar ánægju af lestri. Eitt að verkefnum vikunnar var að allir nemendur skólans lærðu lagið Þorraþræl (Nú er frost á fróni). Í morgun var einstök samverustund hér í skólanum þar sem allir nemendur og starfsfólk skólans mynduðu keðju um allan skólann með því að taka höndum saman og syngja lagið. Þáttastjórnendur Landans og myndatökumaður komu í heimsókn til okkar og tóku viðburðinn upp. Einnig tóku þeir upp árlegt þorrakappát hjá unglingastigi, tóku viðtöl við nokkra nemendur skólans og heimsóttu nokkar kennslustofur o.fl.

Þátturinn verður sýndur á RÚV sunnudagskvöldið 29. janúar kl. 19:45 og hvetjum við alla til að horfa.