Líf og fjör á íþróttadegi Njarðvíkurskóla

Íþróttadagur í Njarðvíkurskóla 2022
Íþróttadagur í Njarðvíkurskóla 2022

Það var líf og fjör í Njarðvíkurskóla í dag föstudaginn 22. apríl en þá fór fram árlegur íþróttadagur skólans. Íþróttadagurinn fer þannig fram að allir bekkir skólans keppa í ýmsum þrautum. Þrautirnar í ár voru bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Hver bekkur var með sinn lit og setti það skemmtilegan brag á daginn. Í lokin fór fram keppni nemenda í 6.-10. bekk í reipitogi og einnig var troðslukeppni.

Að lokum var íþróttabekkur Njarðvíkurskóla krýndur en það er sá bekkur sem fékk flest stig í keppnum dagsins. Í ár voru það nemendur í 8.MRF sem unnu bikarinn góða.