Litla upplestrarkeppnin í Njarðvíkurskóla

Föstudaginn 19. mars var Litla upplestrarkeppnin haldin á sal Njarðvíkurskóla. Keppnin hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu 16. nóvember og lýkur í mars sama skólaári. Þátttakendur eru nemendur í 4. bekk

Litla upplestrarkeppnin hófst í Hafnarfirði haustið 2010 og byggir á markmiðum Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin er árlega í 7. bekk. Meginmarkmið keppninnar er að nemendur flytji íslenskt mál sjálfum sér og öðrum til ánægju og að þeir hafi vandvirkni og virðingu að leiðarljósi við flutninginn. Keppnishugtakið felur eingöngu í sér það markmið að keppa við sjálfan sig, að verða betri í dag enn í gær. Nemendur hafa því æft undir handleiðslu umsjónarkennara sinna í vetur.

Í ár var hægt að bjóða einum fulltrúa frá hverjum nemenda til að koma á sal og fylgjast með, með teknu tilliti til sóttvarnarreglna sem voru í gildi þeim tíma. Allir nemendur tóku þátt og lásu upp hvort sem það var sem einstaklingur eða hluti af hóplestri. Fyrir marga nemendur var þetta stórt skref að standa fyrir framan stóran hóp og lesa upp og stóðu því allir nemendur sig eins og hetjur. Á milli upplestra voru síðan nemendur úr 4. bekk sem fluttu tónlistaratriði undir stjórn Geirþrúðar Bogadóttur og Þorvaldar Guðmundssonar tónlistarkennara úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Að lokum afhendi Ásgerður Þorgeirsdóttir skólastjóri öllum nemendum viðurkenningu fyrir þáttöku í keppninni.