Mikil ánægja með hafragrautinn í morgun

Í tilefni af þemadögum í Njarðvíkurskóla var hafragrautur í boði fyrir nemendur í morgun og verður aftur í boði í fyrramálið. Mikil ánægja var með hafragrautinn í morgun þar sem fjöldi nemenda mættu fyrr og borðuðu morgunmatinn í skólanum.

Nemendum stendur til boða að fá hafragraut aftur á morgun frá 7:45-8:10.