Mikil ánægja með heimsókn Þorgríms Þráinssonar

Þorgrímur með nemendum í 8.HG
Þorgrímur með nemendum í 8.HG

Þorgrímur Þráinsson heimsótti í dag nemendur í 8.HG, sem eru allt stúlkur, og las upp úr óútgefinni bók sem fjallar meðal annars um vinina Máney og Sóla. Stúlkurnar voru mjög spenntar yfir upplestrinum og öllu sem Þorgrímur ræddi um. Í lokin gaf hann öllum áritaðar bækur þar sem hann lagði áherslu á að lestur og góður orðafroði væri lykillinn að góðum árangri í lífinu.

Njarðvíkurskóli þakkar Þorgími kærlega fyrir komuna. Hann náði mjög vel til stúlknanna, sem voru gífurlega ánægðar með heimsóknina og bókagjöfina.