Njarðvíkurskóli fékk flotta endurgjöf frá Landvernd

Sóley Sara Rafnsdóttir hannaði nýtt umhverfismerki Njarðvíkurskóla í nóvember 2018.
Sóley Sara Rafnsdóttir hannaði nýtt umhverfismerki Njarðvíkurskóla í nóvember 2018.
Á mánudaginn fékk skólinn heimsókn fá Landvernd til að kanna stöðu umhverfismála í skólanum. Skólinn hefur verið með Grænfánann í rúman áratug og var kominn tími á endurnýjun. Skólinn fékk mikið hrós fyrir þá vinnu sem hefur farið fram innan skólans. Skólinn hefur sett sér þemu sem hann vinnur eftir en þau eru að efla vægi hreyfingar í skólastarfi og útikennslu, að viðhalda flokkunarmenningu skólans, að draga úr matarsóun og að auka þátttöku grenndarsamfélagsins. 
 
Skólinn fékk flotta endurgjöf frá Landvernd og fær skólinn afhentan nýjan fána á næstunni sem verður okkar fimmti fáni. 
 
Allt er vænt sem vel er grænt !