Öðruvísi Öskudagur á tímum Covid19

Almannavarnir í samvinnu við Embætti landlæknis og Heimili og skóla hafa tekið saman leiðbeiningar varðandi öskudaginn sem allir viðeigandi aðilar eru vinsamlega beðnir um að taka til sín og taka virkan þátt í því verkefni að halda góðan og gleðilegan en öðruvísi Öskudag á farsóttartímum.  

Gerum okkur dagamun í nærumhverfinu
Höldum upp á daginn á heimavelli, í skólanum, frístundaheimilinu eða félagsmiðstöðinni.

Mætum í búningum
Brjótum upp á hversdagsleikann með því að mæta öll í búningum. Ungir sem aldnir.

Endurvekjum gamlar hefðir
Nú er tækifæri að endurvekja gamlar öskudagshefðir eins og að búa til öskudagspoka og slá köttinn úr tunnunni. Með sóttvarnir í huga að sjálfsögðu.

Syngjum fyrir sælgæti
Ef hefð er fyrir því að ganga á milli húsa eða fyrirtækja í hverfinu væri upplagt að foreldrafélög tækju upp á sína arma að halda utan um hvar sé hægt að koma og syngja fyrir nammi. Athugið að gæta fyllstu sóttvarna og gefið aðeins sér innpakkað sælgæti

Við erum öll almannavarnir!