Öskudagur í Njarðvíkurskóla

3. bekkur
3. bekkur

Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í Njarðvíkurskóla 2. mars 2022.

Yngra stigið fór í þrautir í íþróttahúsinu og eldra stigið tók þátt í ýmsum þrautum í stofunum á 3. hæð skólans.

Öskudagur er skertur skóladagur í Njarðvíkurskóla sem og í öðrum grunnskólum í Reykjanesbæ. Nemendur voru í skólanum frá 8:15-11:20 og eftir það lauk skóla. Að loknum skóladegi fóru mörg börn niður í bæ og sungu fyrir góðgæti í hinum ýmsu fyrirtækjum í bænum.